Sunday, November 18, 2007

BT Reykjanesbær

Jæja, tilraun tvö hérna á þessari síðu. Veit samt ekki hvort þetta mun ganga, finnst það gerast æ oftar að ég man ekki nema slitrur úr því sem mig dreymir þegar ég vakna. Um daginn vaknaði ég hins vegar og mundi nokkuð skýrt hvað mig dreymdi, og ætla ég að reyna að koma því í letur áður en það verður um seinan.

Mig dreymdi sumsé að ég hefði verið fenginn til að sjá um BT Keflavík eina helgi. Ég hef ekki ennþá komið þarna inn svo ég veit ekki hvernig pleisið lúkkar en í draumnum var þetta helvíti flott, á tveimur hæðum þar sem á efri hæðin var aðstaða fyrir starfsmenn, en ekki yfir búðinni nema að hluta (eins og í Skeifunni) og veggurinn sem snéri útí búð glerveggur. Ekkert slor.

Ég var eitthvað að vesenast þarna, það var síðsumarskvöld og það var opið til 10 (sem það er ekki í raunveruleikanum) og ég er að loka þegar síminn hringir og það er 4427 á númerabirtinum, eða raftækjadeild BTSK. Ég svara og í símanum er Arnar Stef. Hann segist vera búinn að vinna og hvort hann megi ekki koma og kíkja á nýju búðina og á mig í leiðinni. Ég bíð hann velkominn, ég eigi hvort eð er eftir að gera upp svo ég sé ekkert að fara heim strax.

Upp að þessum tímapunkti var draumurinn nokkuð eðlilegur. En svo mætti Arnar á svæðið, með Bubba Morteins með sér (ég veit ekki til þess að þeir þekkist), en Arnar þurfti að passa uppá hann, því Bubbi var fallinn af vagninum og að leita sér að djammi. Það er skemmst frá því að segja að Bubbi sleppur frá okkur og kemur aftur löngu seinna alveg á perunni. Eftir þetta rennur draumurinn eitthvað saman, Arnar fer með Bubba í burtu á Land Cruiser og svo var ég alltíeinu byrjaður aftur í háskólanum, nema hvað að kennslan fór fram í húsakynnum BT Keflavík.

Frekar mikil steik. Þess má til gamans geta að Saga réð þennan draum nánast samstundis. Ég þrái verslunarstjórastöðuna í BT meir en allt og Bubbi táknaði að ég var farinn að þrá að komast útá lífið. Spurning hvort hún hafi hitt naglann á höfuðið?

Tuesday, March 13, 2007

Næturopnun í BT

Mig dreymdi um daginn að ég væri að vinna í BT. Svo sem ekkert óeðlilegt við það nema hvað að við vorum með opið til 02:00 eftir miðnætti! Venjulega var þetta svo sem ekkert vandamál en þetta kvöld var laugardagskvöld og af einhverjum ástæðum var búðin líka í Kringlunni, við hliðina á Kringlukránni. Þetta gerði það að verkum að búðin var full af rónum og fyllibyttum og meir en að segja það að hreinsa út og loka. Klukkan hálf þrjú var ennþá fullt af fólki inni og ekkert fararsnið á liðinu. Að auki stoppaði ég þjóf og gerði peningana hans upptæka og hann hótaði mér öllu illu. Að lokum gafst ég upp og sagðist vera farinn heim og eftir það er allt í móðu, enda kannski engin farsæl lausn á þessari undarlegu stöðu sem ég var í .

Testing, 1, 2, 3

Fyrsti pósturinn á þessari nýju síðu sem um leið er ákveðin tilraun af minni hálfu.

Stefnan er að skrá niður hérna alla vitleysuna sem mig dreymir en þeir sem kannast við mig ættu að vita hversu ofur steikta drauma mig dreymir oft og finnst mér full ástæða til að skrifa þetta niður áður en þetta fellur allt í gleymskunnar dá.

Þannig að ef einhver man eftir einhverju sem ég hef sagt honum að mig hafi dreymt einhvern tíman í fyrndinni endilega minnið mig á það svo að ég geti sett það hérna inn. Ég ætla að reyna að setja vitleysuna inn jafn óðum en reyna að koma með klassíska steypu inná milli þegar hún rifjast upp fyrir mér.

Ef einhver vill gera heiðarlega tilraun til að ráða þessa drauma á einhvern hátt (þó svo að ég trúi ekki á draumaráðningar) þá endilega smellið inn smellnum kommentum. Öllum Freud-ískum tilvísunum verður þó vísað beint til föðurhúsanna.